Kvartmíluklúbburinn heldur King of the Street / Outlaw King, bikarmót í áttungsmílu á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 20. ágúst 2022.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
King of the Street - götubílar
SKRÁNINGARSKYLDA OG Á NÚMERUM
HEADS UP
PROTREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. REACTION TÍMA
King of the Street - götuhjól
SKRÁNINGARSKYLDA OG Á NÚMERUM
HEADS UP
PROTREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. REACTION TÍMA
Outlaw King - ofurbílar
HEADS UP
PROTREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. REACTION TÍMA
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
14:00 Mæting keppenda
14:00 Skoðun hefst
14:00 Pittur lokar
14:45 Skoðun lýkur
14:45 Keppendafundur
15:00 Keppni
17:30 Lokaúrslit birt
KK
Viðburðarstjóri: Ingimundur Helgason
Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson
Dómnefnd 1: Sigurjón Andersen
Dómnefnd 2: Baldvin Hansson
20. ágúst 2022 kl: 15:00
Kvartmílubrautin 1/8 míla
Lýsing: 1/8 míla
Áttungsmíla
Skráning hefst: 15. júlí 2022 kl: 06:00
Skráningu lýkur: 17. ágúst 2022 kl: 23:00
King of the Street - götubílar
King of the Street - götuhjól
Outlaw King - bílar
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/z5RJd
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir King of the Street 2022 / Outlaw King 2022.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 23. júlí 2022 kl: 15:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 16 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 4 skráningar berist fyrir hann.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Ingólfur Arnarson og Baldvin Hansson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.
4.1.3 Brautin er 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i King of the Street
5.1.1.a.ii Outlaw King
5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i King of the Street
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skáningu lýkur 22. júlí kl. 13:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald er kr. 8.000 .
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum
9.2.1.a í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.1.b í framrúðu að ofanverðu horni farþegamegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Útsláttarkeppni klukkan 15:00. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.3 Uppröðun að lokinni einni tímtökuferð er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum. Raðað er í útsláttartré skv. viðbragðstíma í tímatökuferð.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/z5RJd
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Sigurjón Andersen og Baldvin Hansson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 7000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur |
---|---|---|
Ingvar Samuelsson | KK | King of the Street - götuhjól |
Kjartan Guðvarðarson | BA | King of the Street - götubílar |
Hlynur Árnason | KK | Outlaw King - bílar |
Ingimundur Helgason | KK | Outlaw King - bílar |
Stefán Kristjánsson | KK | Outlaw King - bílar |
Árni Már Kjartansson | KK | Outlaw King - bílar |
sindri hafsteinsson
Aðst: Hafsteinn Valgarðsson |
KK KK |
King of the Street - götubílar |
Sigurður Ólafsson | KK | King of the Street - götubílar |
Símon Helgi Wiium | KK | King of the Street - götubílar |
Arnar Már Jónsson | KK | King of the Street - götubílar |
Eyþór Ingólfsson Melsteð | KK | King of the Street - götubílar |
Hilmar Jacobsen | KK | King of the Street - götubílar |
Ingolfur Snorrason | KK | King of the Street - götuhjól |
Björn Sigurbjörnsson | AÍFS | King of the Street - götuhjól |
Birgir Þór Kristinsson | BA | King of the Street - götuhjól |
Guðmundur Alfreð Hjartarson | KK | King of the Street - götuhjól |